stjorn@nordfirdingafelagid.is     822-1709
   
Leturstærð
Þarftu gott helgarfrí?
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar (STAF) býður okkur að  leigja sumarbústað Munaðarnesi í vetur.  Helgarleiga er 15 þús.  Hafið samband við Birnu Rósu Gestsdóttir  4771699/8465527 birnarosa@simnet.is.
30.01.2009
Sólarkaffið og innsendur pistill

Við minnum á sólrarkaffið og aðalfund félagsins á Sunnudag kl. 14 í safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju. Ekki myndi saka ef einhverjir sem gaman hafa af bakstri komi með góðgæti með til að gera þetta enn veglegra.

 Læt hér líka fylgja með pistil sem við fengum sendan frá fréttaritara okkar fyrir austan:

Við segjum í
 
Það er algengt að fólk segi á Neskaupstað en það er ekki rétt. Þetta hefur vafist fyrir mörgum ekki síst fréttamönnum sem segja ýmist í eða á og hafa afskaplega skrítna formúlu fyrir því. Fyrir margt löngu lærðist mér það að við förum í kaupstað og þess vegna tölum við um í Neskaupstað. Við förum ekki á Reykjavík, það væri svo helvíti sárt, en við förum til Reykjavíkur/Neskaupstaðar eða erum í Neskaupstað/Reykjavík.
Þessi málvilla er býsna algeng og mér finnst hún algengari hjá yngra fólkinu sem og brott fluttum. Höldum okkur við það að við förum í kaupstað eða dal, hvort sem það er Neskaupstaður eða Búðardalur!