Ég vil hrósa Elmu fyrir stórgóða hugmynd um kommasafn í Litlu Moskvu og hvet hana hér með til að fylgja hugmyndinni eftir. Möguleikarnir eru ótæmandi! Sérstaða hvers byggðarlags er dýrmæt eign, ef hún er nýtt af skynsemi, og liðlega hálfrar aldar samfelld meirihlutastjórn sósíalista í Neskaupstað er klárlega sérstaða til að byggja á. Stytta af Lenín á góðum opnum stað í bænum, jafnvel með þríeykið Lúðvík, Bjarna og Jóhannes í forgrunni, myndi vekja feikilega athygli. Slíkt opið svæði mætti nefna G-blettinn með skírskotun til Alþýðubandalagsins ;) Í raun er þetta of góð hugmynd til að rykfalla. Hvet ég því Norðfirðinga nær og fjær til að leggja Elmu lið í þessu verkefni.

