Norðfirðingurinn Stefán Arason (sonur Maríu Bjarnadóttur og Ara Dan.) hefur um árabil stjórnað kór í Kaupmannahöfn og kallar hópurinn sig Staka.Kórinn, sem næstum einvörðungu er skipaður íslendingum búsettum í Kaupmannahöfn, var stofnaður 2004 og hefur sungið vítt og breitt um heimin, þrátt fyrir ungan starfsaldur. Alls eru meðlimir í Stöku 14 talsins, og hafa flestir einhverja tónlistarmenntun sér að baki.
Dagana 20. og 22. febrúar mun kórinn halda tónleika á Íslandi. Þann 20. halda þau tónleika á Kjarvalsstöðum, kl.20.00, og þann 22. febrúar í Reykholtskirkju kl.16.00.
Það er markmið Stöku að kynna íslenska tónlist erlendis. En í þetta skiptið finnst þeim kominn tími til að snúa dæminu við, og inniheldur söngskráin einvörðungu danska kórtónlist frá ýmsum tímum.
Komdu og hlýddu á tónlist eftir Per Nørgård, Bent Sørensen, Ib Nørholm, Vagn Holmboe, Carl Nielsen o.fl. Staka syngur frábæra tónlist þessara tónskálda, og fjallar tónlistin um snjó, drauma, trjásetningu, stelpu sem dansar, dauðann, brjóst, vind, blóm, stjörnuhrap, sól og margt, margt annað.
Miðaverð er 1.500 kr.

